Íbúðalánasjóður veitti nú í vor eins og undanfarin tvö ár meistaranemum í byggingariðnaði styrki fyrir góðan
námsárangur. Styrkirnir eru veittir í tilefni af 50 ára afmæli húnsæðislána hér á landi.
Styrkirnir fóru til nema sem útskrifuðust sem meistarar í byggingariðngreinum. Styrkjunum var úthlutað samkvæmt ábendingum frá
skólameisturum viðkomandi skóla. Heildarfjárhæð styrkjanna var 500.000 kr. og skiptist milli nemendanna. Styrki Íbúðalánasjóðs
hlutu að þessu sinni Arnar Sigurbjörnsson og Ivica Gregoric í Iðnskólanum í Reykjavík, Garðar Már Garðarsson og Sigurður Fannar
Sigurjónsson í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, Gísli Jóhann Sigurðsson, Björgvin Björgvinsson, Jóhannes Guðmundur
Vilbergsson og Sigurður Ingvarsson í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Haukur Freyr Reynisson, Verkmenntaskólanum á Akureyri.