Íbúafundur á Kópaskeri á morgun - Öxarfjörður í sókn

Í Öxarfirði. Mynd: JS
Í Öxarfirði. Mynd: JS

 

Auglýstur hefur verið íbúafundur á Kópaskeri á morgun, miðvikudaginn  27. apríl.  Það er verkefnið “Öxarfjörður í sókn” sem  býður til þessa upplýsinga- og umræðufundar í Skólahúsinu á Kópaskeri og stendur fundurinn frá  kl. 17:00 til 19:00.

Á dagskrá fundarins eru:  Drög að framtíðarsýn og markmiðum verkefnisins. Næstu skref. Og önnur mál.

Allir eru hvattir til að mæta  og kynna sér málin. Kaffi verður að sjálfsögðu á könnunni. JS

Nýjast