ÍBA fékk rúmar 8 milljónir króna fyrir síðasta ár úr Ferðasjóði íþróttafélaga

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ undirrituðu í dag samning þar sem Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands er falin umsjón og umsýsla með Ferðasjóði íþróttafélaga. Alls var í dag úthlutað 30 milljónum króna úr ferðasjóðnum fyrir síðasta ár og þar af komu 8,2 milljónir króna í hlut Íþróttabandalags Akureyrar. Sigfús Ólafur Helgason formaður Þórs og fyrrverandi varaformaður ÍBA sagði að þetta væri mikill gleðidagur og ein stærsta stund í sögu íþróttafélaga á landsbyggðinni. Á fundi ríkisstjórnar Íslands í mars 2007 var samþykkt að koma á fót ferðasjóði íþróttafélaga innan vébanda ÍSÍ til að jafna aðstöðumun og efla íþrótta- og forvarnastarf, í samræmi við tillögur nefndar sem menntamálaráðherra fól að fjalla um ferðakostnað íþróttafélaga. Með stofnun ferðasjóðsins eru mörkuð tímamót í ferðakostnaðarmálum íþróttahreyfingarinnar. Með samningnum er komið á fót sjóði sem kemur til móts við íþróttafélög vegna kostnaðar þeirra af ferðalögum innanlands, sérstaklega þeirra sem eiga um langan veg að fara til þess taka þátt í viðurkenndum mótum. Markmið sjóðsins er einnig að stuðla að öruggum ferðamáta íþróttafólks. Framlag ríkisins í sjóðinn er alls 180 milljónir króna á árunum 2007- 2009 og skiptist á eftirfarandi hátt: 30 milljónir króna fyrir árið 2007, 60 milljónir króna fyrir árið 2008 og 90 milljónir króna. fyrir árið 2009. Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands var í dag með undirritun þjónustusamnings formlega falin umsjón og umsýsla sjóðsins. Opnað var fyrir umsóknir í sjóðinn 10. desember 2007 og rann umsóknarfrestur út 10. janúar sl. Alls bárust umsóknir frá 138 íþróttafélögum, frá öllum héraðssamböndum ÍSÍ. Sótt var um styrk fyrir 21 íþróttagrein. Heildarkostnaður umsókna var um 260 milljónir króna en heildarkostnaður styrkhæfra umsókna var ríflega 223 milljónir króna. Í ljósi þess að um fyrstu úthlutun er að ræða og heildarumfang ferðakostnaðar lá ekki með öllu fyrir var mikil áhersla lögð á að fá inn umsóknir fyrir allar ferðir árið 2007 sem félög þurftu að fara út fyrir sitt sveitarfélag, á þau mót sem skilgreind voru í umsóknareyðublaði til sjóðsins. Umsóknum fyrir árið 2007 var safnað saman og styrkupphæðir metnar með tilliti til umfangs umsókna og upphæðar ríkisstyrks.

Við mat á umsóknum var að þessu sinni tekið mið af eftirfarandi:

  • Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ gátu sótt um stuðning.
  • Einungis Íslandsmót og mót sem voru undanfarar Íslandsmóta voru styrkhæf.
  • Einungis ferðir sem voru 150 km eða lengra aðra leið, voru styrkhæfar.

Ferðastyrkir verða greiddir út í marsmánuði.

Forsendur fyrir úthlutun 2008 verða endurskoðaðar í ljósi reynslu af úthlutun 2007.

FERÐASJÓÐUR ÍÞRÓTTAFÉLAGA

ÚTHLUTUN FYRIR ÁRIÐ 2007

Héraðssamband/íþróttabandalag Úthlutun

HHF Héraðssambandið Hrafna-Flóki 9.510

HSH Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu 1.126.007

HSK Héraðssambandið Skarphéðinn 1.121.897

HSV Héraðssamband Vestfirðinga 975.571

HSÞ Héraðssamband Þingeyinga 1.041.903

ÍA Íþróttabandalag Akraness 170.368

ÍBA Íþróttabandalag Akureyrar 8.191.050

ÍBH Íþróttabandalag Hafnarfjarðar 992.519

ÍBR Íþróttabandalag Reykjavíkur 2.751.049

ÍBS Íþróttabandalag Siglufjarðar 499.854

ÍBV Íþróttabandalag Vestmannaeyja 3.761.735

ÍRB Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 240.095

ÍS Íþróttabandalag Suðurnesja 379.395

UDN Ungmenna og íþróttasamband Dalamanna og N-Breiðfirðinga 7.613

UÍA Ungmenna og íþróttasamband Austurlands 3.505.123

UÍÓ Ungmenna og íþróttasamband Ólafsfjarðar 278.265

UMSB Ungmennasamband Borgarfjarðar 149.320

UMSE Ungmennasamband Eyjafjarðar 285.542

UMSK Ungmennasamband Kjalarnesþings 1.688.008

UMSS Ungmennasamband Skagafjarðar 1.175.535

UNÞ Ungmennasamband Norður Þingeyinga 19.739

USAH Ungmennasamband Austur Húnvetninga 151.654

USÚ Ungmennasambandið Úlfljótur 1.383.626

USVH Ungmennasamband Vestur Húnvetninga 81.953

USVS Ungmennasamband Vestur Skaftfellinga 12.690

FERÐASJÓÐUR ÍÞRÓTTAFÉLAGA

ÚTHLUTUN FYRIR ÁRIÐ 2007

Íþróttagrein Úthlutun

Badminton 148.117

Blak 1.480.910

Borðtennis 7.383

Fimleikar 166.228

Frjálsar íþróttir 384.350

Glíma 167.975

Golf 309.514

Handknattleikur 7.280.323

Hestaíþróttir 3.538

Íþróttir fatlaðra 233.349

Júdó 92.377

Karate 0

Keila 0

Knattspyrna 14.153.778

Körfuknattleikur 3.398.551

Siglingar 3.076

Skíðaíþróttir 642.001

Skotfimi 6.947

Sund 242.991

Skautaíþróttir 1.228.345

Akstursíþróttir 50.268

Nýjast