Hvanndalsbræður senda frá sér nýtt lag

Hljómsveitin Hvanndalsbræður mun senda frá sér nýtt lag á miðvikudaginn 29. júlí nk sem ber heitið "Vinkona" . Lala.., lagið sem bandið sendi frá sér í byrjun sumars, hefur fengið gríðalega góð viðbrögð landsmanna og situr sem stendur í 5. sæti á Tonlist.is, 6. sæti á Fm 957 lista, 9. sæti á lista Rásar 2 og í 4.  sæti sem mest spilaða lagið á landinu í dag, samkvæmt Tónlistanum. Lagið sat í öðru sæti þar í síðustu viku.  

Hvanndalsbræður verða mikið á ferðinni á næstunni og halda tónleika á:

Græna Hattinum fimmtud. 30. júlí kl 21:00

Mælifelli Sauðárkróki föstud. 31.júlí kl 23.30

Borgarfjörður Eystri sunnud. 02.ágúst kl 21:30

Víkurröst Dalvík miðvikud. 5.ágúst kl 21:00

Græni Hatturinn laugard. 8. ágúst kl 21:00

Valaskjálf Egilsstöðum föstud. 21. ágúst kl 22:00

Nýjast