HVAÐ ER AKUREYRSK MENNING?

Mynd: Guðrún Þórsdóttir.
Mynd: Guðrún Þórsdóttir.

Leikfélag Akureyrar (LA) í samvinnu við Menningarhúsið Hof frumsýnir verkið Borgarasviðið - Leiðsögn fyrir innfædda föstudaginn 27. maí kl. 20. Aðeins er ráðgert að sýna verkið tvisvar og verður seinni sýning laugardaginn 28. maí kl. 20.

Sýningin er óvenjuleg því hún hefst með gönguferð frá Menningarhúsinu Hofi undir leiðsögn akureyskra kvenna sem allar eru af erlendu bergi brotnar. Gengið verður að Samkomuhúsinu en þar tekur við fjölbreytt dagskrá til heiðurs akureyskri menningu. Hér er gestum boðin einstök leikhúsupplifun og verður spennandi að sjá og heyra hversu glöggt "gests" augað er. Verður hægt að svara spurningunni um það hver sé hin akureyrska menning? Sú spurning hefur verið leiðarljós kvennanna við vinnslu verksins.

Sýning Borgarasviðsins er leið Menningarfélagsins til þess gefa borgurum á Akureyri tækifæri til að velta upp spurningum um samfélagið sem þeir lifa og hrærast í og leita svara með meðulum og vinnuaðferðum leikhússins. Listrænir stjórnendur eru þær Aude Busson og Vala Höskuldsdóttir.

Nýjast