19. nóvember, 2009 - 15:18
Stjórn Hafnasambands Íslands hefur sent frá sér ályktun, þar sem mótmælt er harðlega öllum hugmyndum um upptöku nýs skatts
á ferðamenn á Íslandi og hækkun vitagjalds, en hvort tveggja mun leiði til aukinnar gjaldtöku af farþegum og útgerðum skemmtiferðaskipa
sem leggja leið sína til landsins. Stjórnin skorar á ríkisstjórnina að endurskoða þessar fyrirætlanir, sem munu ef af verður, skaða
þá markaðssetningu sem hafnir og ferðaþjónustuaðilar hafa staðið fyrir á liðnum árum varðandi skemmtiferðaskipin og fækka
verulega komum þessara skipa til landsins.
Það mun hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar til hins verra fyrir fjárhag þeirra hafna, sem skemmtiferðaskipin hafa átt viðskipti við
eða stefna að viðskiptum við. Í greinargerð með ályktuninni segir:
Nú er að störfum nefnd fjármálaráðuneytisins sem skoðar valkosti um skattlagningu vegna komu ferðamanna til Íslands, þ.m.t. skatt
á farþega skemmtiferðaskipa. Þá liggur fyrir tillaga um tvöföldun svonefnds vitagjalds, sem skilar ríkissjóði nú þegar 145
m.kr., en er áætlað að skili um 290 m.kr. á árinu 2010. Stjórn Hafnasambands Íslands hefur skilning á þörf
ríkissjóðs til frekari tekjuöflunar, en varar við handahófskenndri skattlagningu af þessum toga. Á síðustu árum hafa hafnir og
ferðaþjónustuaðilar unnið öflugt markaðsstarf við að fjölga komum skemmtiferðaskipa til Íslands og hefur farþegum með þessum
skipum einnig fjölgað verulega. Ríkissjóður hefur notið góðs af þessari markaðssetningu án þess að leggja fram teljandi
fjármuni. Stjórn Hafnasambands Íslands hvetur ráðherra ríkisstjórnarinnar að gæta hófs í nýrri skattlagningu af
þessum toga og varar við afleiðingum óskynsamlegrar skattlagningar. Þá undrast stjórnin að á sama tíma og hafnir, sem flestar standa afar
höllum fæti fjárhagslega, eru hvattar til að gæta hófs í breytingum á gjaldskrám, þá gengur ríkissjóður fram
í veigamiklum hækkunum skatta. Stjórn Hafnasambands Íslands bendir á eftirfarandi í þessu efni:
- a) Ný skattlagning á farþega skemmtiferðaskipa heggur í heimildir hafna til gjaldtöku samkvæmt hafnalögum.
- b) Bent er á reynslu frá Alaska og Noregi þar sem vanhugsuð gjöld drógu úr fjölda ferðamanna.
- c) Af hálfu hafna kemur ekki til greina að hafnirnar annist innheimtu fyrir ríkissjóð á nýjum farþegaskatti.
- d) Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir að vitagjald standi undir rekstri Siglingastofnunar. Þar er nú gert ráð fyrir 10% niðurskurði og
verulegum breytingum á starfsemi stofnunarinnar þannig að hækkun vitagjaldsins er augljóslega hugsuð sem nýr tekjustofn ríkissjóðs.
- e) Hækkun vitagjaldsins mun væntanlega nema hærri fjárhæð en heildarhækkun hafna á gjaldskrám sínum fyrir árið 2010.
- f) Hækkun vitagjaldsins og nýr farþegaskattur munu skaða þá markaðssetningu sem hafnir og ferðaþjónustuaðilar hafa staðið
fyrir á liðnum árum varðandi skemmtiferðaskipin.