Hreppsnefnd Arnarneshrepps ósátt við úthlutun vegna kvótaskerðingar

Hreppsnefnd Arnarneshrepps er ekki sátt við að einungis 500.000 krónur hafi komið í hlut hreppsins við fyrstu úthlutun vegna tekjumissis vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks. Félagsmálaráðuneytið hefur tilkynnt um þessa greiðslu, sem er lágmarksupphæð. Hreppsnefnd Arnarneshrepps fer fram á að fá stærri hlut í næstu úthlutunum frá ráðuneytinu í ljósi þess að 12 störf hafa tapast í sveitarfélaginu vegna samdráttar í aflamarki þorsks á síðasta ári. Stærsta vinnustað í hreppnum sem verið hefur í hreppum í áratugi var lokað og öllum sagt upp í september á síðasta ári vegna þessa.

Nýjast