Hestamannafélagið Léttir á Akureyri gagnrýnir harðlega þá ákvörðun Landssambands hestamannafélaga (LH) um að landsmót hestamanna 2020 og 2022 verði haldin á Suðurlandi. Í ályktun frá félaginu segir að með þessari ákvörðun sé stjórn LH að ákveða að þrjú landsmót í röð, 2018-2020 og 2022 verði öll í einum landsfjórðungi. Sigfús Ólafur Helgason, framkvæmdastjóri Léttis, segir vegið að hestamennsku á landinu. Nánar er fjallað um málið og rætt við Sigfús í prentúgáfu Vikudags sem kom út í gær.
-Vikudagur, 14. apríl