Hranastaðir í Eyjafjarðarsveit Nýtt varphænuhús að rísa

Reising stálgrindar nýs varphænuhúss að Hranastöðum í Eyjafirði er nú komin vel af stað. Verkefnið e…
Reising stálgrindar nýs varphænuhúss að Hranastöðum í Eyjafirði er nú komin vel af stað. Verkefnið er mikilvægur áfangi í uppbyggingu Eggjabúsins að Hranastöðum og mun húsið, þegar það verður fullbúið, bjóða upp á nútímalega og öfluga aðstöðu fyrir starfsemina. Mynd á vef Súlna Stálgrindahúsa

Verið er að reisa stálgrindarhús, tæplega 3.500 fermetrar við Hranastaði sem verður undir varphænur.

Húsið er 84 metra langt og rúmir 40 metrar á breid. Lögð er áhersla á að á endingargóðar lausnir og efnisval sem hentar vel íslenskum aðstæðum. Reising burðarvirkis er komin vel á veg og á næstu vikum tekur við uppsetning klæðninga og annar frágangur.

„Það er alltaf sérstakur áfangi þegar fyrsta súlan fer upp. Þá sér maður margra mánaða hönnunar- og undirbúningsvinnu verða að veruleika. Verkefnið að Hranastöðum er bæði stórt og spennandi og við erum ánægð með að fá að taka þátt í þessari uppbyggingu,“ segir Kristján Heiðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Súlna Stálgrindarhúsa en fjallað er um nýja varphúsið á vefsíðu félagsins.

Nýjast