Höskuldur vísar ummælum Guðfinnu til föðurhúsanna

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokks
Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokks

Eins og sagt hefur verið frá hér á dagskráin.is gagnrýndi Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina Höskuld Þórhallsson þingmann flokksins mjög harkalega í Facebookfærslu á dögunum. Gagnrýni Guðfinnu kom í kjölfar greinar sem Höskuldur birti í Fréttablaðinu þar sem hann gagnrýnir skrif Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, um flugvöllinn í Reykjavík í Morgunblaðinu nokkru áður.

Guðfinna sagði m.a. að skrif Höskuldar væru líklega met í þekkingarleysi. „Þessi persónulega óvild hans í garð Sigmundar er alveg vandræðaleg og endurspeglast í þekkingar- og áhugaleysi Höskuldar á flugvallarmálinu,“ segir í færslu Guðfinnu.

Í samtali við Dagskrána.is vísaði Höskuldur þessum ummælum Guðfinnu til föðurhúsanna. „Þau dæma sig sjálf og eru aðeins til þess gerð að draga athygli frá staðreyndum málsins og efnisinnihaldi greinarinnar sem ég birti í Fréttablaðinu,“ segir Höskuldur.

Höskuldur vísar jafnframt ásökunum Guðfinnu um áhugaleysi á bug. „Við höfum haldið ótal fundi um flugvallarmálið í samgöngunefnd. Þetta er það mál sem hefur verið efst á baugi hjá mér á kjörtímabilinu. Við funduðum fyrir viku síðan um afleiðingar þess að neyðarbrautin færi – við fengum m.a. á fund til okkar fulltrúa frá öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna (ÖFÍA), fulltrúum frá Hjartanu í Vatnsmýrinni og frá flugrekstraraðilum og lækni á sjúkrahúsinu á Akureyri,“ segir Höskuldur og bendir á að hann sé 2. flutningsmaður frumvarps um þjóðaratkvæðagreiðslu um flugvöllin í Vatnsmýri.

„Við höfum unnið hörðum höndum að því að það frumvarp nái fram að ganga á þessu kjörtímabili. Ég hef sinnt því mjög dyggilega. Ég er einnig fyrsti flutningsmaður frumvarps um að taka alla þrjá varamillilandaflugvelli landsins, Reykjavíkur-, Egilsstaða- og Akureyrarflugvöll undir einn hatt og allur þingflokkurinn er með mér í því máli. Það var afgreitt í nefnd síðasta vor og eina sem vantaði upp á er að það komist í atkvæðagreiðslu,“ segir hann

Höskuldur nefnir líka að hann sé tilbúinn með frumvarp sem er í samræmi við bréf sem innanríkisráðherra sendi á dögunum til borgarstjóra.  „Þar er bent á að það verði að tryggja veru Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni á meðan annar betri eða jafn góður kostur liggur ekki fyrir,“ segir hann og bætir við: „Þannig að ég hef gert allt sem í mínu valdi stendur sem formaður samgöngunefndar, það er ekkert sem stendur út af borðinu. Meira get ég í rauninni ekki gert, Guðfinna þyrfti að kynna sér málið betur.“

Höskuldur hefur eins og kunnugt er boðað framboð gegn Sigmundi Davíð um fyrsta sæti í prófkjöri flokksins í Norðausturkjördæmi eins og raunar tveir aðrir þingmenn, þær Líneik Anna Sævarsdóttir og Þórunn Egilsdóttir.  

Fréttin hefur verið uppfærð kl: 08:27.

Áður var skrifað að Höskuldur væri fyrsti flutningsmaður frumvarps um að taka alla þrjá millilandaflugvelli landsins; Keflavík, Egilsstaði og Akureyri. ÞAð sem Höskuldur átti við var að sjálfsögðu varamillilandaflugvelli landsins og þar átti að vera Reykjavíkurflugvöllur í stað Keflavíkur eins og nú hefur verið  leiðrétt.

-epe

Nýjast