Horft verði til stöðunnar á vinnu-markaði við forgangsröðun verkefna

Vinnumarkaðsráð Vinnumálastofnunar Norðurlandi eystra, samþykkti ályktun á fundi sínum í vikunni, þar sem þeim  tilmælum er beint til allra sveitarfélaga á starfssvæði ráðsins að á komandi misserum verði við forgangsröðun verkefna á vegum sveitarfélaganna horft til stöðunnar á vinnumarkaðinum.  

Ráðið leggur áherslu á að ekki verði dregið úr vinnuaflsfrekum framkvæmdum og við innkaup verði megin áhersla á innlenda framleiðslu. Ályktun þessi hefur verið send til allra sveitarstjórna á Norðurlandi eystra.

Nýjast