Forsvarsmenn Starfsendurhæfingar Norðurlands (SE) funda á mánudag með forsvarsmönnum menntamálaráðuneytisins vegna slæmrar
fjárhagsstöðu. Eins og fram hefur komið stefnir í að starfsemin leggist af verði ekkert að gert. Geirlaug Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri SE, segist vera bjartstýn fyrir fundinn með forsvarsmönnum menntamálaráðuneytisins og að á honum verði
framtíð fyrirtækisins vonandi tryggð. Ástæðu bjartsýninnar segir hún vera jákvæðan tón frá ráðuneytinu.
„Eftir að málið fór í fjölmiðla má segja að hjólin hafi farið að snúast og menn fóru að sýna máli
okkar áhuga," sagði Geirlaug en hún hafði áður talað um í fjölmiðlum að menntamálaráðuneytið sýndi málum
fyrirtækisins ekki nægan áhuga. Starfsendurhæfing Norðurlands hófst sem tilraunaverkefni á Húsavík árið 2003 en svo var formlega
stofnað fyrirtæki um starfsemina í febrúar 2006 á Akureyri. SE sinnir Eyjafirði og svæðinu allt austur á Þórshöfn og eru um 90
manns nú í tengslum við fyrirtækið ýmist í starfsendurhæfingu eða eftirfylgd. Geirlaug segir enn fremur langt því frá að
fyrirtækið anni eftirspurn, um 50 manns séu á biðlista.