Hollvinasamtök SAk afhentu nýja öndunarvél

Sólveig Skjaldardóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur svæfinga- og gjörgæsludeild,  Oddur Ólafsson starf…
Sólveig Skjaldardóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur svæfinga- og gjörgæsludeild, Oddur Ólafsson starfandi forstöðulæknir svæfinga- og gjörgæslulækninga, Jóhannes G. Bjarnason formaður Hollvinasamtaka SAk, Hermann Haraldsson og Kristín Sigfúsdóttir stjórnarmenn Hollvinasamtaka SAk. Mynd: Sólveig Tryggvadóttir

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) afhentu í dag 14. apríl nýja öndunarvél fyrir gjörgæsludeildina á Sak sem kostaði um 9 milljónir króna. Það eru því þrjár nýjar öndunarvélar á sjúkrahúsinu í dag. Fyrr á þessu ári afhentu samtökin 10 rúm á geðdeild sjúkrahússins að andvirði 7 milljóna.

Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga á SAk sagði að gjöf af þessu tagi hefði mikla þýðingu fyrir starfsemi sjúkrahússins í samtali við Vikudag í febrúar.

Ný öndunarvél afhent SAk

Nýjast