02. september, 2009 - 17:37
Á fundi skólanefndar í vikunni kom m.a. fram að innritun barna í leikskóla Akureyrarbæjar er að mestu lokið. Alls voru 280 börn innrituð
þetta haustið og voru 20 þeirra fædd árið 2008. Að auki voru 50 börn flutt á milli leikskóla að ósk foreldra. Ekkert barn er
nú á virkum biðlista. Þá kom fram á fundinum að hlutfall fagmenntaðra starfsmanna í leikskólunum er nú um 85%.