Rúmlega tvítugur karlmaður var í gær dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Norðurlands eystra, fyrir að aka bíl undir áhrifum fíkniefna í janúar sl. Pilturinn var hann einnig dæmdur til að greiða 70
þúsund krónur í sekt auk þriggja mánaða ökuleyfissviptingar fyrir vímuefnaakstur. Einnig fannst talsvert af grasi í bílnum og
við húsleit á heimili mannsins, eða tæplega 100 grömm.