Hlaupa maraþon til styrktar hollvinum SAk

Elías Gunnar (t.v) og Þorleifur eru klárir í maraþonhlaupið.
Elías Gunnar (t.v) og Þorleifur eru klárir í maraþonhlaupið.

„Ég fékk þessa hugmynd síðasta vetur, þegar tengdafaðir minn, Stefán Gunnlaugsson, betur þekktur sem Stebbi Gull, lá í eitt skipti af mörgum inni á Sjúkrahúsinu á Akureyri,“ segir Þorleifur Kristinn Níelsson, sem ásamt vini sínum Elíasi Gunnari Þorbjörnssyni mun hlaupa til styrktar Hollvinasamtökum SAk í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina. Þeir félagar hlaupa í nafni tengdaföður Þorleifs en Stefán er einn af stofnendum Hollvinasamtaka SAk.

Stefán hefur glímt við alvarleg veikindi en Vikudagur sagði sögu hans fyrir um tveimur árum. Hægt er að heita á þá félaga á www.hlaupastyrkur.is.

Lengra viðtal við Þorleif má nálgast í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag.

-þev

Nýjast