Fjórir af fimm bráðahjúkrunarfræðingum á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hafa sagt upp störfum vegna óánægju með ráðningarferli nýs forstöðuhjúkrunarfræðings í byrjun ársins og sá fimmti hefur óskað eftir leyfi. Um reynslumikla hjúkrunarfræðinga er að ræða sem hafa starfað lengi á sjúkrahúsinu. Framkvæmdastjóri hjúkrunar á SAk segir öllum reglum hafa verið fylgt við ráðningu nýs forstöðuhjúkrunarfræðings.
Nánar er fjallað um málið í prentúgáfu Vikudags sem kemur út í dag.
-Vikudagur, 14. apríl