Hjólreiðastandur í miðbæ Akureyrar

Hjólreiðarstandurinn er sá fyrsti sinnar tegundar á landinu.
Hjólreiðarstandurinn er sá fyrsti sinnar tegundar á landinu.

Sérstakur hjólreiðaviðgerðarstandur var settur upp neðst í Skátagilinu í Miðbæ Akureyrar á dögunum. Standurinn er samvinnuverkefni milli Hjólreiðafélags Akureyrar (HFA) og Akureyrarbæjar. Hjólreiðastandurinn er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. „Þetta er mjög stór áfangi fyrir okkur hjólreiðamenn og ánægjulegt að fyrsti standurinn rísi hér á Akureyri,“ segir Vilberg Helgason formaður HFA en nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags.

-þev

Nýjast