Bæjarráð Akureyrar hefur formlega samþykkt að íþróttafulltrúi hefji undirbúning að því að útvista rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli til einkaaðila. Á fundi bæjarráðs Akureyrar fyrir páska var tekið undir þá ósk íþróttaráðs bæjarins að fela forstöðumanni íþróttamála að hefja undirbúning þess að reksturinn verði útvistaður. Mikil vinna hefur verið í gangi undanfarið í aðgerðahópi um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hefur um nokkurn tíma verið að skoða framtíð rekstrar Hlíðarfjalls fyrir Akureyri og hafa einkaaðilar sýnt áhuga um að taka að sér reksturinn. Frá þessu var fyrst greint í Fréttablaðinu.
-Vikudagur, 7. apríl