Hátíðahöld á Torfunefsbryggju á sjómannadaginn

Sjómannafélag Eyjafjarðar og Hollvinir Húna II. bjóða til hátíðahalda á Torfunefsbryggju á sjómannadaginn, sunnudaginn 1. júní. Þá verða sjómannamessur í kirkjum Akureyrar og blómsveigur lagður að minnismerki um týnda og drukknaða sjómenn.

Annars lítur dagskrá sjómannadagsins svona út:

Kl: 08:00 fánar dregnir að hún. Bæjarbúar hvattir til að flagga.

Kl: 11:00 sjómannamessur í Akureyrar- og Glerárkirkju.

Kl: 12:15 blómsveigur lagður að minnismerki um týnda og drukknaða sjómenn við Glerárkirkju.

Kl: 13:00 Húni II. og Haffari leggja frá Torfunefsbryggju og sigla að Sandgerðisbót.

Þar safnast sem flestir bátar saman, skorað er á alla smábátaeigendur að sigla með í hópsiglingu inn á Torfunef. Sjómenn, takið fjölskylduna með og flaggið á bátunum.

Kl: 13:30 byrjar Lúðrasveit Akureyrar að spila á Torfunefsbryggju.

Húni II. Haffari og allir bátarnir leggjast að Torfunefsbryggju.

Kl: 14:00 helgistund undir stjórn Arnaldar Bárðarsonar, og kór Glerárkirkju.

Kl: 14:45 tekur Örn Árnason við stjórn skemmtunarinnar.

Þar verður m.a.:

Örn og Óskar Pétursson skemmta.

Karlakór Akureyrar-Geysir.

Þorvaldur Halldórsson og Helena Eyjólfsdóttir

syngja sjómannalög.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir björgun úr sjó.

Danshópurinn Vefarinn sýnir þjóðdansa.

Sjómenn fara í koddaslag.

Arngrímur Jóhannsson flugmaður lendir sjóflugvél.

Kaffi og kleinur fyrir fullorðna.

Svali og pizza fyrir börnin.

Börn fá að fara á báta undir stjórn

Siglingaklúbbsins Nökkva.

Kl: 17:15 Húni siglir með sjómenn og fjölskyldur þeirra, rúmlega klst.

Borð og bekkir verða á bryggjunni en fólk er hvatt til þess að taka

með sér létta garðstóla.

Nýjast