Harður árekstur og bílvelta í hálku

Tvö slys í umdæmi Slökkviliðs Akureyrar vegna hálku með stuttu millibili í gærmorgun.  Í Eyjafjarðarsveit varð harður árekstur tveggja bíla og í Bakkaselsbrekku valt bifreið með tveimur mönnum.  

Í fyrra slysinu þurfti að nota klippur til að ná öðrum ökumanninum úr bílnum en ökumenn voru einir í bílum sínum.  Þeir voru báðir fluttir á slysadeild með nokkra áverka. Í bílveltunni sluppu ökumenn án meiðsla en voru skoðaðir af sjúkraflutningamönnum sem fóru á staðinn.

Samtals tóku þátt í þessum verkefnum 8 sjúkraflutningamenn á fjórum sjúkrabílum auk 5 slökkviliðsmanna á tækjabíl Slökkviliðsins.

Nýjast