Harðfiskur frá Hjalteyri á leið á markað í Nígeríu

Bræðurnir Friðrik J. og Rúnar Friðrikssynir hjá Arcticus Sea Products á Hjalteyri. Mynd/Margrét Þóra…
Bræðurnir Friðrik J. og Rúnar Friðrikssynir hjá Arcticus Sea Products á Hjalteyri. Mynd/Margrét Þóra.

Fyrsta sending af bitafiski sem fyrirtækið Arcticus Sea Products á Hjalteyri framleiðir er nú á leið til Nígeru og verður þar á boðstólum í verslunum í höfuðborginni Abuju. Fiskurinn verður seldur í 50 gramma neytendapakkningum og er þetta í fyrsta sinn svo vitað sé að harðfiskur frá Íslandi er seldur í slíkum pakkningum beint til neytenda þar í landi. Nígería er stórt land með um 170 milljónir íbúa.

„Það var ákveðið að láta á þetta reyna, sjá hvernig viðtökur verða og hvort framhald verður á,“ segir Rúnar Friðriksson framleiðslustjóri Arcticus Sea Products. Nánar er fjallað um málið í nýjasta tölublaði Vikudags.

Nýjast