Handboltatímabilið hefst í kvöld

Handboltatímabilið er loks að hefjast og tekur Akureyri á móti FH í fyrsta leik liðanna í N1 deildinni á komandi tímabili kl.19:30 í kvöld. Leikurinn fer fram í Höllinni, þar sem Akureyri leikur heimaleiki sína í vetur.

Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar er nokkuð bjartsýnn á komandi tímabil. „Mér lýst bara ágætlega á tímabilið, það hefur verið fínn gangur hjá okkur síðustu þrjár vikurnar og engin ástæða til annars en að við getum veitt öllum liðunum keppni sem er bara skemmtilegt."

Nánar er spjallað við Rúnar í Vikudegi í dag.

Nýjast