04. febrúar, 2008 - 12:37
Lögreglan á Akureyri stöðvaði bifreið aðfararnótt sl. sunnudags þar sem hún var vanbúin til vetraraksturs og einnig var einum farþega
ofaukið í bifreiðinni. Í bifreiðinni reyndust vera aðilar sem þekktir eru af neyslu og meðferð fíkniefna. Við nánari athugun fundust um
fjögur grömm af amfetamíni í hanskahólfi bifreiðarinnar og eitt gramm á einum farþeganum. Allir aðilarnir voru handteknir og færðir
á lögreglustöð og fundust þá sextán grömm af amfetamíni í viðbót á öðrum farþega sem hann hafði
falið innanklæða og viðurkenndi hann að hafa ætlað efnið til sölu.
Við húsleit fundust svo tæp fjögur grömm í viðbót og voru því haldlögð tæp tuttugu og fimm grömm alls. Við
málið naut lögreglan á Akureyri aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra, segir á vef lögreglunnar.