Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri segist á vef KEA vera sáttur við niðurstöðuna. „Við tókum hressilega niðurfærslu í síðasta ársuppgjöri með það að markmiði að sýna sem raunhæfasta stöðu félagsins eftir þær hamfarir sem hér hafa dunið yfir. Rekstrarumgjörð fyrirtækja er enn mikilli óvissu háð en við teljum okkur hafa lagt nægjanlegt til hliðar. Afkoman tekur mið af því að reynt hefur verið að tryggja höfuðstól félagsins á kostnað ávöxtunar á meðan mesta óvissan líður hjá hvað varðar ýmsa þætti efnahagsmála og endurreisnar bankakerfisins. Lausafjárstaðan er mjög góð og efnahagslegur styrkleiki einnig. Við höfum aðlagað stefnu félagsins að breyttum aðstæðum á þann veg að nú leitar félagið að áhugaverðum fjárfestingakosti sem færir félagið að svokallaðari kjarnastarfsemi sem þýðir að meginstarfsemi félagsins verður á einu sviði eða í einni atvinnugrein."