Sigmundur Sigfússon hefur látið af störfum sem forstöðulæknir geðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri eftir 32 ár í starfi. Þann 1. janúar sl.
tók Helgi Garðar Garðarsson við sem forstöðulæknir og samdi til 5 ára. Sigmundur hættir sökum aldurs en hann komst á fullan eftirlaunaaldur sl. sumar. Samið hefur verið um að Sigmundur starfi áfram á sjúkrahúsinu til loka næstkomandi maímánaðar.
Sigmundur segir í samtali við Vikudag að þetta séu tímamót í sögu geðheilbrigðisþjónustu á Norðurlandi en stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri samdi við hann sumarið 1984 um að flytja frá Reykjavík og gegna stöðu yfirlæknis hér til að endurvekja geðdeild við sjúkrahúsið.
Lengri frétt og viðtal við Sigmund má nálgast í prentútgáfu blaðsins.
-Vikudagur, 18. febrúar