Friðbjarnarhús sem stendur við Aðalstræti 46 fékk viðurkenningu Húsverndarsjóðs Akureyrarbæjar og tóku þeir Gunnar
Lórenzson, Guðmundur Magnússon og Árni Valur Viggósson á móti viðurkenningunni en þeir hafa lagt gríðarlega mikið á sig
við endurbætur á húsinu. Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæjar voru að þessu sinni veitt fyrir breytingar á eldra húsnæði og var
það mat stjórnarAkureyrarstofu og ráðgjafa hennar að þessa viðurkenningu ætti skilið að fá verslunin Eymundsson-Penninn við
Hafnarstræti 91-93 en hönnuðir þeirra breytinga sem gerðar voru á versluninni eru þau Valdimar Harðarson og Steinunn Guðmundsdóttir frá
Arkitektastofunni ASK. Versluninni Eymundsson-Pennanum var veitt viðurkenning fyrir sitt framlag til eflingar miðbæjarins.
Að síðustu var veitt viðurkenning Menningarsjóðs fyrir framlag til menningar og lista í bænum og þótti Sigurður Heiðar
Jónsson vel að henni kominn en framlag hans til menningarlífs á Akureyri og til uppbyggingar Listagilsins er mikið og ótvírætt.