Stjórn Byggðastofnunar hefur samþykkt umsókn Akureyrarbæjar um þátttöku Hríseyjar og Grímseyjar í verkefninu Brothættar byggðir. Atvinnumálanefnd Akureyrar fagnar því að verkefnið sé að fara af stað í samstarfi við Byggðastofnun og leggur til að auglýst verði eftir verkefnastjóra sem fyrst. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, verkefnastjóri atvinnumála hjá Akureyrarbæ, segir í samtali við Vikudag að tíðindin séu ánægjuleg.
Það er nauðsynlegt að fá eyjarnar inn í þetta verkefni og fyrsta verkefnið verður að halda íbúafundi á eyjunum, segir hún. Markmiðið með Brothættum byggðum er m.a. að leiða fram skoðanir íbúanna sjálfra á framtíðarmöguleikum heimabyggðarinnar og leita lausna á þeirra forsendum í samvinnu við ríkisvaldið, landshlutasamtök, atvinnuþróunarfélag, sveitarfélagið, brottflutta íbúa og aðra. Aðferðin byggist á að halda tveggja daga íbúaþing þar sem rædd er staða byggðarinnar og leiðir til úrlausna.
-þev