Hið gríðarlega fallega og jafnframt eitt stærsta, ef ekki það stærsta, skemmtiferðaskip sem siglt hefur um Íslandsstrendur í sumar, Grand
Princess, lagðist við höfn Akureyrar í morgun og stoppaði í nokkrar klukkustundir.
Mikið líf var við höfnina þann tíma enda mikill fjöldi manns sem ferðast með skipinu eða 2750 farþegar ásamt 1050 manna
áhöfn, auk þess sem fjöllistahópurinn, Skapandi sumarstörf, tók á móti gestum skemmtiferðaskipsins eins og þeim einum er
lagið.
Þórhallur Jónsson varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri gefur kost á sér í 2-3 sæti í komandi röðun Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningarnar n.k vor. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi til fjölmiðla og er svohljóðandi:.
Níu nemendur brautskráðust frá MA í lok haustannar. Sjö þeirra voru við brautskráningu í dag, 9. janúar, en tvær stúlkur voru flognar af landi brott. Athöfnin var á Miðsal í Gamla skóla þar sem útsýnið var fagurt á þessum fallega vetrardegi. Skólameistari flutti stutt ávarp og Íris Ísafold konsertmeistari skólans spilaði tvö lög.
Það fór ekki framhjá neinum að desember var óvenjulega hlýr og var hiti langt yfir meðallagi. Á landsvísu var þetta þriðji hlýjasti desembermánuður frá upphafi mælinga. Jólin voru sérstaklega hlý þegar sunnanhvassviðri gekk yfir landið.
„Þetta verður kærkomin viðbót og bætir okkar aðstöðu,“ segir Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, HSN, sem samið hefur um stækkun stöðvarinnar, en viðbótarrými verður tekin í notkun í apríl í vor.