Grænfáninn afhentur Pálmholti

Leikskólinn Pálmholt á Akureyri fékk í dag Grænfánann afhentan í annað sinn í röð, en skólinn fékk fánann fyrst afhentan árið 2007. Fáninn er veittur til tveggja ára í senn og er fyrst og fremst alþjóðleg umhverfis viðurkenning fyrir skóla. Hugrún Sigmundsdóttir, skólastjóri Pálmholts, segir verkefnið snúast að miklu leyti um börnin.  

„Krakkarnir hér í skólanum taka þessu mjög vel og eru tilbúinn í þetta verkefni. Þau eru mjög virkir þátttakendur í þessu og um það snýst þetta,” segir Hugrún.   

Nýjast