Sundfélagið Óðinn gerði góða ferð á Akranesleikana í sundi sem fram fór um sl. helgi. Óðinn stóð uppi sem annað
stigahæsta félag mótsins. Félagið sendi fjölmennt lið á mótið eða tæplega 60 manns á aldrinum 8-16 ára.
Óðinn vann til 16 gullverðlauna í einstaklingsgreinum og til fjögurra gullverðlauna í boðsundum.
Eitt af markmiðum sundmanna á mótinu er að ná lágmörkum inn á Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi (AMÍ) sem
haldið verður á Akureyri síðar í mánuðinum en þó nokkur AMÍ-lágmörk náðust á Akranesi um helgina
hjá Óðni.