„Þetta er stórt skref fyrir mig — að fara út fyrir þægindarammann og bjóða fólki heim í fuglaparadísina okkar. Mig langar að sýna að bútasaumur er listform sem á erindi við alla.“segir Dröfn Teitsdóttir sem opnar fyrstu einkasýningu sína nú um helgina að Hólabraut 4 í Hrísey.
Helga Ösp Jónsdóttir hefur tekið við starfi skógarvarðar í Vaglaskógi og er hún fyrsta konan til að gegna slíku starfi hjá opinberri skógræktarstofnun á Íslandi. Hún er menntuð plöntusjúkdómafræðingur og starfaði áður hjá Landi og skógi. Helga segist hafa verið afar vel tekið af starfsfólki sem hún lýsir sem einvalaliði á vef Lands og skóga.
Geðheilsuteymi barna hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands hefur fengið veglega gjöf frá Lionsklúbbnum Ylfu. Gjöfin samanstendur af skynörvunarvörum og fiktileikföngum sem nýtast vel í meðferð barna og unglinga.
Mærudagar eru ein af skemmtilegustu hefðum Húsavíkur og stemningin byrjar löngu áður en hátíðin sjálf hefst. Þegar fánarnir, litirnir og skreytingarnar fara að birtast um bæinn vitum við að Mærudagar eru að nálgast.