KEA og Drift EA hafa gert með sér samkomulag sem miðar að því að efla frumkvöðlastarf, nýsköpun og uppbyggingu nýrra fyrirtækja á Norðurlandi. Með samkomulaginu gerist KEA bakhjarl Driftar EA og tekur þar með virkan þátt í að styrkja stuðningsumhverfi sprota- og vaxtafyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu. Sterkir heimaaðilar koma nú saman að því að styðja við þessa mikilvægu umgjörð.
Núna á vorönn er byggingadeild VMA í samstarfi við byggingaverktakann Húsheild-Hyrnu á Akureyri um að gefa nemendum innsýn í glugga- og hurðasmíði á afar vel búnu verkstæði fyrirtækisins. Nemendur á öðru ári hafa farið í heimsókn á verkstæðið, 3-5 í senn, og fengið að fylgjast með og taka þátt í að smíði glugga. Í þessu felst m.a. niðurefnun gluggaefnisins, stilling tölvustýrðs vélbúnaðar, fræsingar, samsetning, lökkun, glerjun og lamasetning
Háskólinn á Akureyri leiðir nýtt alþjóðlegt samstarfsverkefni, Next GEN Tourism, sem hlotið hefur 250.000 evra styrk úr Erasmus+ áætluninni til næstu tveggja ára. Verkefnið miðar að því að styrkja getu og þekkingu lítilla og meðalstórra ferðaþjónustufyrirtækja til að takast á við kynslóðaskipti og tryggja áframhaldandi rekstur þeirra til framtíðar. Verkefnastjóri er Verena Karlsdóttir, lektor hjá Viðskiptadeild.
Hagkaup bauð upp á fermingarkvöld í versluninni í Smáralind í fjórða sinn Í síðastliðinni viku til þess að kynna unglingunum ýmislegt áhugavert fyrir fermingardaginn þeirra, svo sem að fræða þau um húðumhirðu.
„Þetta er ein stærsta stundin í lífi i okkar Þórsara, við getum nú litið björtum augum fram á veginn,“ sagði Nói Björnsson formaður Íþróttafélagsins Þórs þegar samkomulag um uppbyggingu íþróttamiðstöðvar á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs var undirritað á dögunum. Með samkomulaginu er sett af stað vinna við hönnun á íþróttamiðstöð á félagssvæði Þórs og í kjölfarið gerður samningur um fyrirhugaða uppbyggingu þar sem fram kemur nákvæm áætlun um verkefnið.