Glæsileg A-álma tekin í notkun í Glerárskóla

Breytingarnar eru mjög vel heppnaðar  Myndir  MÞÞ
Breytingarnar eru mjög vel heppnaðar Myndir MÞÞ

Ný og endurbætt A-álma hefur verið tekin í notkun í Glerárskóla. Gestum bauðst að líta á þær heilmiklu breytingar sem gerðar hafa verið á álmunni, en húsnæðið hefur verið endurnýjað á þann hátt að miklar breytingar hafa verið gerðar á vinnuumhverfi nemenda og starfsfólks.

Eyrún Skúladóttir skólastjóri sagði í ávarpi að markmið framkvæmdanna við Glerárskóla hafi verið að hanna og endurgera skólahúsnæðið þannig að það sé heilsusamlegt og þjóni starfseminni eins og best verður á kosið. Skólinn uppfyllir nú allar þær kröfur sem gerðar eru til skólahúsnæðis þegar kemur að hljóðvist, eldvörnum, loftgæðum og tæknimálum í kennslu, svo eitthvað sé nefnt.

Þau Hrafn Leví Þórðarson, Torfhildur Elva Friðbjargar Tryggvadóttir og Kristófer Aron Jónsson fluttu skólasöng Glerárskóla en þau eru öll í 9. bekk.

Öll verknámskennsla á neðri hæð

Áhersla var lögð á að nýta neðri hæð A-álmu mun betur en verið hefur með því að lækka jarðveg á milli álma skólans og koma fyrir stórum gluggum og aðgengi að görðum frá rýmum á neðri hæðinni. Þessar breytingar og viðbygging við tengigang milli álmanna gerðu mögulegt að koma fyrir allri verknámskennslu á neðri hæðinni.

Á efri hæðinni er öll starfsmannaðstaða, móttaka skólans, funda og sérkennslurými auk kennslurýma.

Heildarendurbætur á húsnæði

Framkvæmdin var 3. áfangi heildarendurbóta húsnæðis Glerárskóla. Fyrsta áfanga lauk í september 2019 þegar B-álma var tekin aftur í notkun. Annar áfangi fólst í endurbótum á D-álmu sem var tekin í notkun í ágúst 2020 og neðri hæðin þar um áramótin 2020-2021. A-álman var tilbúin til skólahalds haustið 2024 en áfram var unnið við ýmsan frágang framvæmda.

Framkvæmdin fól í sér heildarendurbætur á A-álmu skólans. hluta tengigangs og inngarða á milli A- og C-álmu og austan A-álmu, einnig var byggð nýbygging á milli A- og C-álmu.

Gómsæt kaka rann ljúflega niður.

Nýjast