Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Norðurlandi í desember

Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 54.200 en voru 53.600 í sama mánuði árið 2006. Gistinóttum fjölgaði því um rúmlega 1% á milli ára á landinu öllu en sé hver landshluti skoðaður er um talsverðar breytingar að ræða. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Norðurlandi, úr 1.800 í 2.200 eða um tæp 24%. Gistinóttum á Suðurlandi fjölgaði í desember um tæp 20% á milli ára, úr 2.700 í 3.200. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum í desember um rúmt 1% frá fyrra ári, úr 43.300 í 43.700. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum í desember hins vegar um tæp 54% á milli ára, eða úr 1.300 í 600. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða voru 4500 gistinætur í desember 2007 sem er sami fjöldi og árið áður. Fjölgun gistinátta á hótelum í desember má rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendinga fjölgar um 21%  en gistinóttum útlendinga fækkar um 8% á milli ára, segir í frétt frá Ferðamálastofu.

Nýjast