Talsmenn göngunnar leggja áherslu á að hér sé um óflokkspólitíska uppákomu að ræða, aðeins andsvar við því hvernig komið er fyrir íslensku samfélagi og áskorun um að hafist verði handa við að byggja upp nýtt samfélag þar sem mannauður verði í fyrirrúmi. Einnig er verið að sýna samstöðu með friðsælum mótmælum sem haldin verða á sama tíma í Reykjavík, segir í fréttatilkynningu.