Við sögðum frá því í síðustu viku að KA- mennirnir Guðmundur Hólmar Helgason og Ásgeir Jóhann Kristinsson voru
valdir í U-17 ára landslið karla í handbolta fyrir Ólympíuleika æskunnar í sumar.
Það gleymdist hins vegar að geta þess að Þórsarinn, Geir Guðmundsson, var einnig valinn í hópinn og mun því einnig leika
með landsliðinu á leikunum. Ólympíuleikarnir fara fram dagana 19. - 25. júlí og eru haldnir í Finnlandi.
Listmeðferð hefur á undanförnum árum vakið aukna athygli sem áhrifarík aðferð til að bæta líðan og efla nám. Ein af frumkvöðlum á þessu sviði er Dr. Unnur Óttarsdóttir, listmeðferðarfræðingur og rannsakandi, sem hefur þróað og kennt listmeðferð í yfir þrjá áratugi.
Drift EA hefur nú valið 18 frumkvöðlaverkefni sem halda áfram í nýsköpunarferlinu Slipptakan 2025. Alls bárust 27 umsóknir, og endurspegla valin verkefni þá frumkvöðlagrósku og sköpunarkraft sem einkennir svæðið.
Á föstudaginn fór fram lokaviðburður Norðansprotans sem er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmynd Norðurlands. Leitin hófst 19. maí og voru 22 glæsileg verkefni sem skiluðu inn umsóknum, en af þeim voru valin átta verkefni sem fengu að kynna verkefni sitt fyrir dómnefnd.
Við hátíðlega athöfn á ársfundi Sjúkrahússins á Akureyri 27. maí voru Hvatningarverðlaun SAk 2025 afhent í fimm flokkum: öryggi, samvinna, framsækni, fagmennska og samskipti. Verðlaunin eru veitt starfsfólki sem skarar fram úr í störfum sínum og leggur sitt af mörkum til að skapa jákvæða og heilbrigða vinnustaðamenningu á SAk.
Laugardaginn 7. júní n.k. verður opnun á ferskri heildarsýningu í Menningarhúsi í Sigurhæðum ásamt mögnuðum og glæsilegum nýjum verkum Margrétar Jónsdóttur leirlistamanns, sem hún hefur unnið sérstaklega fyrir Sigurhæðir af einstakri natni síðastliðið ár. Þar gefur að líta 17 persónur tengdar sögu Sigurhæða auk nýrra veggverka.
Sýning Margrétar er hluti af 40 ára starfsafmæli hennar sem listamanns á Akureyri.