Um helgina var máluð þrívíddargangbraut yfir Listagilið á móts við Listasafnið. Sambærileg gangbraut hefur áður verið máluð á Ísafirði og hlotið talsverða athygli.
Það var Gautur Ívar Halldórsson sem hafði umsjón með verkinu fyrir hönd Akureyrarbæjar en Gautur rekur fyrirækið Vegamálun GÍH á Ísafirði. Fyrirtækið sérhæfir sig í yfirborðsmerkingum um land allt.