Gamla fréttin: Talinn látinn en birtist óvænt

Myndin tengist fréttinni ekki neitt. Mynd: macinivnw
Myndin tengist fréttinni ekki neitt. Mynd: macinivnw

Gamla fréttin að þessu sinni er úr Degi og birtist fimmtudaginn 26. október árið 2000. Fréttin segir af dularfullu mannshvarfi, en Íslendingur hvarf í Bandaríkjunum seint á níunda áratugnum og var fljótt talinn af. Hann birtist svo óvænt 12 árum síðar. Fréttin hljómar svo:

Við hittumst öll fyrst í gær (þriðjudag) og það hefur enn ekkert komið til tals innan fjölskyldunnar hvað hann var að gera öll þessi ár," segir Ísleifur Halldórsson fyrrverandi læknir í samtali við Dag, en 38 ára sonur hans, Halldór Heimir Ísleifsson, er óvænt kominn í leitirnar og til landsins í faðm fjölskyldunnar, eftir að hafa horfið sporlaust í Bandaríkjunum fyrir rúmum 12 árum. Aðspurður segir Ísleifur að sonur sinn sé að því er virðist við góða heilsu og vel útlítandi. Ekki fékkst í gær samtal við Halldór Heimi, sem dvelst hjá systur sinni í Árbæ. Hann hélt í hagfræðinám í Texas, en eftir því sem næst verður komist hvarf hann sporlaust að öðru leyti en því að bíll hans fannst yfirgefinn á afskekktum stað. Var hann fljótlega talinn af og afskráður úr þjóðskrá. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa fjölskyldumeðlimir í tvígang haldið vestur til að bera kennsl á lík sem svöruðu til útlitslýsingar Halldórs, en reyndin var önnur. Töldu menn líklegast að Halldór hefði verið myrtur eða að hann hefði gengið til liðs við sértrúarsöfnuð, en alténd hafði hann ekkert samband við fjölskyldu sína í þessi rúmu 12 ár, þótt sprelllifandi væri. Þegar Dagur reyndi að ná tali af Halldóri Heimi í gær var greint frá því að ekkert væri um málið að segja að svo stöddu en að von væri á fréttayfirlýsingu í dag, fimmtudag. 

Nýjast