Fyrstu hádegistónleikar vetrarins hjá Tónlistarfélagi Akureyrar verða á föstudaginn kemur í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi og hefjast kl 12.15. Þar mun Jón Sigurðsson píanóleikari leika efnisskrá tileinkaða rússneska tónskáldinu Alexander Scriabin (18721915) en á þessu ári eru hundrað ár liðin frá dauða hans. Jón mun leika fjölbreytta efnisskrá frá mismunandi tímabilum í ævi Scriabins en verk hans þróuðust mikið á æviferli hans.
Jón Sigurðsson hefur lokið meistaraprófi í píanóleik frá Arizona State University í Bandaríkjunum, burtfarar- og píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og meðleikaranámi frá Söngskóla Sigurðar Demetz. Auk þess hefur hann kynnt sér Funktionale Methode.
Jón hefur haldið einleikstónleika regulega og komið fram með fjölmörgum hljóðfæraleikurum og söngvurum. Polarfonia Classics hefur gefið út tvo geisladiska þar sem Jón leikur m.a. verk eftir Scriabin, Barber, Schumann, Mozart, Strauss. Miðasala er á www.mak.is og í miðasölu Hofs.