Fyrsti félagsfundur Einingar-Iðju á Siglufirði

Fyrsti félagsfundur Einingar-Iðju á Siglufirði var haldinn sl. laugardag. Fundurinn var í alla staði mjög góður og lýstu nýir félagsmenn yfir ánægju með sameiningu einstakra deilda Vöku á Siglufirði við stéttarfélögin á Akureyri. Á fundinum fór Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju yfir stöðuna í samningamálum við SA. Fram fór kosning svæðisfulltrúa Siglufjarðar og varamanns. Margrét Jónsdóttir, starfsmaður félagsins á Siglufirði var einróma kosin svæðisfulltrúi og Sigrún Agnarsdóttir var einnig einróma kosin varasvæðisfulltrúi. Þetta þýðir jafnframt að Margrét er komin í stjórn félagsins, trúnaðarráð og samninganefnd Einingar-Iðju og Sigrún er komin í trúnaðarráð félagsins. Þjónustu Einingar-Iðju við félagsmenn á Siglufirði var kynnt og rætt var um málefni skrifstofunnar, m.a. staðsetning og aðgengi. Þetta kemur fram á vef félagsins.

Nýjast