Fyrirningarleið á veiðiheimildum harðlega mótmælt

Sveitarstjórn Grímseyjarhrepps hefur sent bréf til Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra, þar sem fyrirhugaðri fyrirningarleið stjórnvalda á veiðiheimildum er harðlega mótmælt. Þetta sé sú alversta hugmynd sem komið hafi fram í sjávarútvegsstefnu okkar Íslendinga.  

"Útgerðirnar sem nú starfa hér hafa keypt stærsta hluta sinna veiðiheimilda. Ef þær hefðu ekki farið þá leið, væri það borðleggjandi að ekki væri lengur byggð í Grímsey. Einungis var farið eftir lögum stjórnvalda og finnst okkur þessi fyrningarleið á veiðiheimildum vera sem hnífsstunga í bakið. Fiskveiðar og -vinnsla er okkar eina atvinnugrein og augljóst er, að ef stjórnvöld setja útgerðirnar okkar á hausinn, þá er búsetu í Grímsey lokið," segir ennfremur í bréfi sveitarstjórnar.

Nýjast