26. september, 2008 - 15:18
Jóhannes Bjarnason bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins óskaði eftir því á fundi stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar í
morgun, að það yrði bókað að fyrirhuguðu viðhaldi á gólfi íþróttahúss KA verði flýtt um eitt ár og
komi til framkvæmda sumarið 2009.
Á fundinum var framhald á yfirferð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009. Stjórnin samþykkti fjárhags-, rekstrar- og
viðhaldsáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar fyrir árið 2009 og vísaði henni til bæjarráðs.