Fundur um velferðarstefnu og þjónustu við fatlaða

Opinn fundur um gerð velferðarstefnu Akureyrarbæjar og þjónustu við fatlað fólk á Akureyri verður haldinn í kvöld, mánudaginn 11. apríl, frá kl. 17–19 á 2. hæð í Íþróttahöllinni við Skólastíg, gengið inn um aðalinnganginn að ofanverðu.

Velferð og lífsgæði fatlaðs fólks eru mikið hagsmunamála fyrir samfélagið. Fundurinn er opinn öllum en fatlað fólk, aðstandendur og starfsfólk, er sérstaklega hvatt til að mæta.

Hér gefst gott tækifæri til að hafa áhrif á stefnu og áherslur Akureyrarbæjar um málefnið.

Nýjast