Sveitarstjórar sveitarfélaga innan SSNE og framkvæmdastjóri samtakanna áttu í morgun fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, þar sem þau lýstu áhyggjum af stöðu flutningskerfis raforku á svæðinu. Fundurinn var haldinn að frumvæði sveitarfélaganna sem vilja tryggja að raforkuinnviðir hamli ekki áframhaldandi atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi eystra.
Í ávarpi fulltrúa Norðurlands eystra kom fram að skortur á flutningsgetu geti sett fjölmörg verkefni í uppnám, en einnig var komið inn á stöðu atvinnulífs í Norðurþingi, og alvarlega stöðu raforkumála á Langanesi sem hefur haft verulega hamlandi áhrif á uppbyggingu atvinnulífs þar. Það var þó ekki aðeins barlómur, heldur var einnig komið inn á þau fjölmörgu tækifæri sem búa á svæðinu, m.a. með áframhaldandi uppbyggingu svæðisborgarinnar Akureyri og fjárfestingum á svæðinu, þ.á.m. Dysnesi við Eyjafjörð, Bakka við Húsavík og í Finnafirði í Langanesbyggð.
Fundurinn þótti bæði upplýsandi og gagnlegur fyrir þátttakendur fundarins og skein í gegn trú á tækifærunum, atvinnulífi og íbúum á Norðurlandi eystra. Á Norðurlandi eystra eru þróuð og öflug samfélög með hátt menntunarstig og einstaklingar og fyrirtæki sem hafa þekkingu úr allskyns iðnaði og getu til að vinna dýrmæt störf sem leggja mikið til þjóðarbúsins. Sveitarfélögin á Norðurlandi eystra eru tilbúin til sóknar.
Frá þessu er sagt á heimasíðu SSNE