Fúlar á móti gera ”innrás” í Íslensku óperuna

Leikfélag Akureyrar heldur suður yfir heiðar með gleðisprengjuna Fúlar á móti. Sýningin vakti gríðarlega lukku á Akureyri, uppselt var á 50 sýningar og alls sáu um 9.000 manns verkið. Jafnvel voru brögð að því að fólk kæmi oftar en einu sinni á sýninguna, til að fá að hlæja meira, enda ekki á hverjum degi sem þær Edda Björgvins, Helga Braga og Björk Jakobs leika saman í sýningu.  

Gísli Rúnar Jónsson staðfærir og íslenskar verkið sem byggt er á sjónvarpsþáttunum bresku "Grumpy Old Women". Leikstjóri er María Sigurðardóttir. Þær Fúlu á móti, Edda, Björk og Helga Braga skauta af sinni alkunnu snilld í gegnum síðara skeiðið og gera óspart grín að sjálfum sér og öðrum. Nú fá karlmenn loksins að vita hvers vegna eiginkonur, systur og mæður þeirra eru eins og þær eru. Þetta er einstakt tækifæri til að skyggnast inn í hugarheim Fúlla á móti.

Hvað gerist þegar þessar fögru en viðsjárverðu dömur tipla saman um sviðið? Kviknar í þeim? Bíta þær áhorfendur? Sýningar LA á Fúlum á móti hefjast í Íslensku óperunni 7. maí. Næstu sýningar eru 8., 9. og 10. maí, og miðar eru þegar farnir að seljast eins og heitar lummur og yfir 800 miðar selst á þremur dögum.

Nýjast