Frístundastyrkur hækkar um ríflega 30%

Mynd/Akureyrarbær
Mynd/Akureyrarbær

Íþróttaráð Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum 17. desember sl. að frístundastyrkur til niðurgreiðslu á æfinga- og þáttökugjöldum barna og unglinga í bænum hækki úr 12.000 kr. í 16.000 kr. frá og með 1. janúar 2016. Styrkurinn gildir fyrir börn á aldrinum 6-17 ára. Frá árinu 2006 hefur Akureyrarbær veitt styrk til allra barna og unglinga á Akureyri til niðurgreiðslu þátttökugjalda hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum á Akureyri. Styrkurinn tekur gildi árið sem barnið verður 6 ára og fellur úr gildi árið sem unglingurinn verður 18 ára.

Til að nota frístundastyrkinn þarf að fara inn á heimasíðu þess íþrótta-, tómstunda- og/eða æskulýðsfélags þar sem skrá á barn. Þar er hlekkur inn á skráningarsíðu þar sem foreldrar skrá iðkendur. Í lok skráningar- og greiðsluferlisins geta foreldrar valið um að nota frístundastyrkinn frá Akureyrarbæ.

Íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögin veita aðstoð og upplýsingar um skráningu, greiðslu og notkun frístundastyrks hjá hverju félagi fyrir sig. Árið 2016 gildir styrkurinn fyrir börn fædd árið 1999 til og með 2010. Frístundastyrkurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember ár hvert

Nýjast