Framsýn og FSH skrifa undir nýjan kjarasamning

Við undirritun hins nýja kjarasamnings  Mynd  Framsýn
Við undirritun hins nýja kjarasamnings Mynd Framsýn

Stjórnendur Framsýnar og Framhaldsskólans á Húsavík hafa undanfarið átt í viðræðum um nýjan stofnanasamning fyrir starfsmenn skólans sem starfa eftir kjarasamningi félagsins. Viðræðurnar gengu mjög vel og kláruðust þær í gærmorgun með undirskrift aðila. 

Breytingarnar koma til með að veita stjórnendum skólans aukið svigrúm til að launasetja starfsmenn í launatöflu m.v. hæfni, ábyrgð, reynslu og menntun sem gagnast í starfi. Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, þakkaði Valgerði Gunnars skólameistara fyrir ánægjulegt samstarf í gegnum tíðina, sem hefur verið farsælt í alla staði, en hún lætur af störfum í sumar sem skólameistari FSH.

Í hennar tíð hefur skólinn tekið verulegum breytingum, búið er að taka skólahúsnæðið allt í gegn og er hann orðinn mjög aðlaðandi fyrir nemendur og kennara. Full ástæða er til að hvetja ungt fólk sem útskrifast úr Borgarhólsskóla að hefja nám við skólann. Frábær skóli.

Frá þessu segir á heimasíðu Framsýnar

Nýjast