Framkvæmdir við menningarhúsið Hof á áætlun

Framkvæmdir við menningarhúsið Hof á Akureyri ganga vel og eru á áætlun. Frágangi utanhúss, þ.e. klæðning, gluggar og hurðir, á að vera lokið 1. apríl næstkomandi samkvæmt tilboði. Guðríður Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar, segir að vel gangi að setja klæðningu utan á húsið og þá sé unnið af fullum krafti við að glerja, „en það er heilmikið eftir innandyra, vinna við innréttingar fer að hefjast," segir hún. Fjöldi manns vinnur nú í byggingunni og hafa framkvæmdir gengið með ágætum, veður hefur ekki tafið byggingaframkvæmdir að sögn Guðríðar. Hún segir að stefnt sé að því að opna húsið fullbúið vorið 2009.

Nýjast