Framhaldsskóli í tónlist settur á laggirnar

Ríkisstjórnin hefur að tillögu mennta- og menningarmálaráðherra samþykkt að settur verði á laggirnar framhaldsskóli sem býður upp á sérhæfingu í tónlist.

Skólanum er ætlað að bjóða upp á framhaldsskólanám með áherslu á  hljóðfæraleik og söng samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla, þannig að nemendur ljúki  stúdentsprófi af tónlistarbraut, segir á vef Mennta og Menningamálaráðuneytisins.

Ráðuneytið vinnur nú að því í samvinnu við Ríkiskaup að leita eftir aðilum til að stofna og reka slíkan skóla. Gert er ráð fyrir að allt að 200 nemendur geti stundað nám í skólanum standist þeir inntökupróf

 Mennta- og menningarmálaráðuneytið vinnur nú í samstarfi við Ríkiskaup  að undirbúningi auglýsingar eftir aðilum til að setja á fót og reka slíkan skóla, en fyrirhugað er að gera samning  um kennslu allt að 200 nemenda sem þreyta inntökupróf. Inngöngu í skólann geta fengið nemendur annarra framhaldsskóla standist þeir inntökuprófið.

 Samkomulag um stuðning ríkisins við tónlistarnám á vegum sveitarfélaga

Gert er ráð fyrir því að ríkið komi áfram að tónlistarnámi á vegum sveitarfélaga fyrir aðra nemendur á framhaldsstigi í tónlist. Jöfnunarsjóði verður gert kleift að hækka fjárframlög fyrir hverja kennslueiningu og færa nær raunkostnaði tónlistarskólanna með því að hluti nemendahópsins færist til listframhaldsskólans. Stefnt er á að skólastarf hefjist á skólaárinu 2016-2017 með innritun nemenda af landinu öllu, óháð lögheimili.

Gert er ráð fyrir að skólinn verði rekinn á forsendum laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, þ.e. á grundvelli þjónustusamnings við mennta- og menningarmálaráðuneyti.  Lagagrundvöllur fyrir rekstur listframhaldsskóla á sviði tónlistar byggist á 12. gr. sömu laga og að námið verði viðurkennt skv. 23. gr., þar sem lokamarkmið námsins eru skilgreind á 2. – 4. hæfniþrepi, sem felur m.a. í sér tónlistarnámsbraut til stúdentsprófs. /EPE

Nýjast